Þá höfum við lokið því verki að þýða kennsluleiðbeiningar fyrir Neista 1A og 1B. Þær eru nú komnar á sinn stað á heimasíðunni. Við þökkum Þróunarsjóði námsgagna fyrir að hafa gert okkur kleift að ráðast í þetta verkefni og vonum að þær komi notendu Neista að góðu haldi.
Author: Gloppa sf
REIKNA OG TEIKNA
Nú eru komin á vefinn, undir NEISTA og tenglinum REIKNA OG TEIKNA, fjögur hefti með verkefnum fyrir yngra stig. Nemendur leysa verkefnin og fá þá svör sem síðan eru færð inn í punktanet, línur dregnar á milli punkta og þá koma fram myndir af einu og öðru. Verkefnin eru til afnota fyrir hvern sem vill nýta þau í heild sinni eða að hluta. Njótið vel!
Kennsluleiðbeiningar með Neista
Hægt og bítandi bætist við kennsluleiðbeiningarnar með Neista. Nú er fyrsti hluti, þ.e.dæmi 1-100, með Neista 1B komin inn á vefinn ásamt uppfærslu á samsvarandi nemendaefni.
Staðan á þýðingu á kennsluleiðbeiningum með Neista 1AB
Nú er búið að þýða kennsluleiðbeiningarnar með Neista 1A á íslensku og þær komnar á vef Gloppu. Sækist á hnappinn 1. bekkur. Vinna er hafin við að þýða kennsluleiðbeiningar með Neista 1B og stefnt að því að þær verði allar komnar inn á vefinn fyrir vorið.
Kynning á MIO og Neista
Miðvikudaginn 13. ágúst n.k. klukkan 16:00-17:30 verður námsefniskynning í Menntaskólanum við Hamrahlíð samhliða ráðstefnunni Íslensk námsgögn-hvað er til. Þar ætlum við að kynna MIO-stærðfræðiskimun á leikskóla og Neisti-vinnum saman og hugsum djúpt sem er stærðfræðinámsefni fyrir 1.-4. bekk grunnskóla. Þetta er kjörið tækifæri til að kynna sér aðra nálgun í stærðfræðikennslu og útgáfu stærðfræðinámsefnis en hefð hefur verið fyrir.
Grein um MIO í Flatarmálum
Fyrir stuttu birtist grein um skimunarefnið okkar MIO á vef Flatarmála, tímarits stærðfræðikennara. Tengill á greinina er hér
Styrkur úr Þróunarsjóði námsgagna
Nú á dögunum fékk Gloppa sf úthlutað styrk úr Þróunarsjóði námsganga. Styrkurinn er veittur til að þýða úr norsku kennsluleiðbeiningar með fyrsta námsári Neista-lærum saman og hugsum djúpt, þýðingu á bók með stærðfræðihugtökum sem koma fyrir í kennslu yngstu barnanna sem og fjórum vinnubókum fyrir yngsta stigið (Regn og tegn). Vinna er þegar hafin og mun efnið tínast inn á vef Neista á næsta skólaári eftir því sem þýðingunum vindur fram.
Stærðfærðiskimun á leikskólum
Fimmtudaginn 27. febrúar 2025 klukkan 13-16 verður Dóróþea með námskeið í fjarkennslu hjá Endurmenntun HÍ þar sem hún kynnir leiðir til að skima stærðfræðifærni leikskólabarna út frá undirstöðuþáttum stærðfræðináms eins og þeir eru kynntir í skimunarefninu MIO. Námskeiðið er ætlað öllum starfsmönnum leikskóla óháð menntun. Sjá nánar á slóðinni https://endurmenntun.is/namskeid/15423/staerdfraediskimun-i-leikskola-mio/306258
Stærðfræðiskumun á leikskóla-MIO
Föstudaginn 20. september verðum við með staðnámskeið í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands. Þar verður fjallað um stærðfræðiskimun á leikskóla og undirstöðuþætti stærðfræðináms. Skimunarverkfærið MIO verður einnig kynnt lítillega. Nánar á https://endurmenntun.is/namskeid/175H24/staerdfraediskimun-i-leikskola-mio
Frábær aðsókn
Nú er nánast orðið fullbókað á námskeiðið sem við erum með í samstarfi við Endurmenntun Háskóla Íslands um stærðfræðiskimun á leikskóla og grunnþætti stærðfræðináms.